Hurðanet álrammar - Ósamsett
Hurðanet álrammar - Ósamsett
Hurðanet álrammar - Ósamsett
Hurðanet álrammar - Ósamsett
Hurðanet álrammar - Ósamsett
Hurðanet álrammar - Ósamsett

Hurðanet álrammar - Ósamsett

Fullt verð
Verð frá 42.990 kr
Verð
Verð frá 42.990 kr
Einingaverð
per 
Verð er með virðisaukaskatti

Almennt um vöruna

  • Pakki með ósamsettum hurðanetsramma inniheldur alla íhluti sem þarf í hurðaramma með neti sem passar akkúrat fyrir þína hurð.
  • Leiðbeiningamyndbönd og PDF skjöl um samsetningu og uppsetningu finnurðu í kaflanum Leiðbeiningar hér fyrir neðan.
    Innihald pakka: 
    • 2 stk hvítir álprófílar 204cm að lengd, 38,5mm á breidd og  12,5mm á dýpt
    • 2 stk hvítir álprófílar  93cm að lengd, 38,5mm á breidd og  12,5mm á dýpt
    • Net eins og valið var, sniðið í stærð
    • 4 stk. horn og 16 skrúfur
    • 2 stk. lamir og 8 skrúfur
    • 2 stk. segulfestingar og 4 skrúfur fyrir segul og 2 minni skrúfur fyrir plötu
    • 1 stk. miðstyrking sem jafnframt er handfang og 4 skrúfur
    • Gúmmíborði sniðinn í lengd
    • 1 stk. áhald til að festa gúmmíborða
    • Leiðbeiningar um samsetningu
    Nauðsynleg verkfæri sem þarf en eru ekki innifalin í pakkanum:
    • Járnsög
    • Ef ekki sagað í vél þá þarf stokk til að saga álrammann í 45 gráður (til í vefverslun okkar)
    • Skrúfvél eða skrúfjárn
    • Lítil borvél með borum til að bora fyrir lömum og festingum í álrammann
    • Dúkahnífur til að skera umframnet þegar komið í rammann

    Mæla og athuga hvort stærð passar

    • Athugið hvort yfirborðið hringinn í kringum hurðina er slétt 
      þ.e. skoðið hvort einhver hurðapóstur er innar en hinir.
      Ef yfirborðið er ekki slétt þá eru nokkrar leiðir mögulegar, til dæmis er hægt að byggja út þann póst sem er innar, nota þéttilista eða láta hurðanetsrammann ganga inn fyrir hurðapóstinn. 

    • Athugið hvort nægjanlegt pláss er til staðar fyrir álprófílinn og lamir
      Álprófíllinn er 4 cm á breidd og gert er ráð fyrir að álramminn gangi 2 cm inn á dyraopið og 2 cm inn á hurðakarminn, síðan þurfa lamirnar 1,5 cm pláss öðrum megin. Að ofanverðu þarf að gera ráð fyrir 1,5 cm plássi til að hægt sé að lyfta hurðinni á og af lömunum og að neðanverðu þarf að gera ráð fyrir 0,5-1 cm bili að botni svo hurðin verði ekki of stíf þegar opnað og lokað.
      Þrátt fyrir ofangreint er þó hægt að láta álrammann ganga meira inn á dyraopið ef vantar pláss en lamirnar þurfa alltaf sitt pláss, og 1,5 cm að ofanverðu verður að vera til staðar ef ætluniner að getað tekið hurðanetið af reglulega (sjá mynd).



    • Máltaka
      Ef nægjanlegt pláss er til staðar fyrir álprófíla og lamir þá mælirðu breidd og hæð dyraopsins og bætir 4 cm við hvora tölu og notar þau mál fyrir sögun á álprófílunum (þar sem álramminn gengur 2 cm út fyrir dyraopið í allar áttir).
      Ef  ekki er nægjanlegt pláss og álramminn þarf að ganga minna en 2 cm út fyrir dyraopið þá þarftu að bæta við breidd og hæð dyraopsins, þeim tölum sem eiga við hvora stærð í stað 4 cm viðbótarinnar sem væri ef nóg pláss væri til staðar.
      Dæmi: ef dyraopið er 80 á breidd og 190 á hæð og aðeins er pláss fyrir 1 cm hvoru megin og 2 cm að ofan og neðanverðu, þá yrðu málin fyrir álprófílana:
      80+1+1 = 82
      190+2+2 = 194

      Álprófílana á að saga í 45 gráður og máltakan miðast við ytra málið (sjá mynd)



    • Svo framarlega sem breidd og hæð dyraopsins sjálfs er innan 90x200 þá passar stærðin. 
    • Það eru ítarlegar leiðbeiningar á síðunni sem er gott að skoða áður en mælt er.

    Velja net

    Það eru þrjár gerðir af netum og eru þau misjafnlega þétt og henta mismunandi aðstæðum. Netin eru öll svört að lit nema stálnetið sem er stállitt.
    • Skordýranetið
      hefur 324 göt pr fertommu (18x18) og heldur úti flestum skordýrum fyrir utan þeim allra minnstu eins og lúsmýi.

    • Lúsmýnet
      hefur 600 göt pr fertommu (30x20) og heldur úti öllum skordýrum þ.m.t. lúsmýi.


    • Gæludýranet
      hefur 165 göt pr fertommu (15x11) og er sérstaklega hannað til að halda gæludýrum inni (eða úti) auk þess sem það heldur úti flestum skordýrum fyrir utan þeim allra minnstu eins og lúsmýi.

    • Ekkert mál er að skipta um net í álrömmum eftir á ef þú kemst að því að netið sem þú valdir hentar ekki þínum þörfum. (sjá varahluti)

    • Sjá nánar um hvernig á að mæla og hvað þarf að taka tillit til við máltöku í kaflanum Mæla og velja stærð hér að ofan.

    Afhending og sendingakostnaður

    Afhendingartími
    Sendingakostnaður
    • Sendingakostnaður er innifalinn.

    Leiðbeiningar

    Frekari upplýsingar

    Ef þú hefur spurningar þá:
    Athugaðu hvort þú finnur svarið í Algengar spurningar
    Skoðaðu leiðbeiningar okkar
    Sendu okkur fyrirspurn 
    Kíktu til okkar á opnunartíma