Almennt
Sérsniðið og samsett þýðir að þú mælir dyraopið og sendir okkur málin, við sníðum og setjum saman hurðaramma samkvæmt þínum óskum og þú sérð svo um að setja það upp. En ef þú vilt geturðu óskað eftir að við sjáum um mælingu og/eða uppsetningu gegn gjaldi.
Við bjóðum líka upp á DIY pakka ef þú vilt sjá um að sníða og setja saman hurðarammann.
Sérsniðið og samsett pakki inniheldur:
- 1 stk sérsniðinn og samsettur hurðarammi með:
- Net eins og var valið
- Áföstu miðjuhandfangi
- Áfestum lömum og skrúfum til að festa upp
- Áfestum segulfestingum ásamt mótstykkjum og skrúfum til uppsetningar
Stærðarflokkur
- Aðeins er hægt að velja einn stærðarflokk hér, hámarksstærð dyraops má vera 90x216 cm.
Í næstu reitum skráir þú nákvæmt mál dyraopsins, hér er aðeins verið að ákveða stærðarflokk til að reikna verðið.
- Sjá nánar um hvernig á að mæla í kaflanum Breidd og hæð hér fyrir neðan
Net
Það eru þrjár gerðir af netum og eru þau misjöfn að þéttleika og styrkleika og henta því mismunandi aðstæðum. Netin eru öll svört að lit.

-
Skordýranetið
hefur 49 göt pr fersentimeter og heldur úti flestum skordýrum fyrir utan þeim allra minnstu eins og lúsmýi.
-
Lúsmýnet
hefur 96 göt pr fersentimeter og heldur úti öllum skordýrum þ.m.t. lúsmýi.
Gæludýranet
- hefur 24 göt pr fersentimeter og er sérstaklega hannað til að halda gæludýrum inni (eða úti) auk þess sem það heldur úti flestum skordýrum fyrir utan þeim allra minnstu eins og lúsmýi.
Ekkert mál er að skipta um net eftir á ef þú kemst að því að netið sem þú valdir hentar ekki þínum þörfum. (sjá varahluti)
Breidd og hæð
- Í þessa reiti skráir þú nákvæma stærð dyraopsins sem þú vilt hylja
-
Hér er eyðublað til að skrá niður mælingar, við munu kalla eftir þessu blaði og myndum af hverri hurð áður en við útbúum rammana þína. (eyðublaðið miðar við glugganet og sumt af því á ekki við um hurðar og má sleppa að fylla þá liði út eins og t.d. um segulborða og höldu)
- Ef eitthvað er óljóst og þú ekki viss hvort þetta muni ganga upp hjá þér geturðu sent okkur myndir af glugganum og við sjáum hvort við finnum ekki örugglega lausn sem passar þér. Sendu myndirnar á glugganet@glugganet.is eða þú getur kíkt til okkar á opnunartíma.
Staðsetning fyrir lamir
- Mikilvægt er að velja rétt hér svo við borum örugglega lamirnar á réttan stað í rammann.
Afhending og sendingakostnaður
Afhendingartími
- Pantanir á sérsniðnum og samsettum römmum eru tilbúnar til afhendingar innan 14 virkra daga frá því pöntun er greidd. Við leggjum okkur fram um að afhenda sem allra fyrst svo það er einungis ef það er mikið álag sem afhending tekur 14 virka daga.
- Við sendum tilkynningu um leið og pöntun er tilbúin
- Hægt er að sækja sendingar til okkar á opnunartíma.
- Ef óskað er eftir að fá heimsent geta bæst við allt að 3 dagar í flutning.
Sendingakostnaður
- Sendingakostnaður fyrir hverja sendingu er 2.500 kr.
- Athugið að samsettir rammar eru einungis sendir út innan höfuðborgarsvæðisins þar sem erfitt er að pakka þeim fyrir almenna flutninga.
Frekari upplýsingar
Ef þú hefur spurningar þá:
Athugaðu hvort þú finnur svarið í Algengar spurningar
Skoðaðu leiðbeiningar okkar
Sendu okkur fyrirspurn
Kíktu til okkar á opnunartíma