
Almennt
Rúlluhurðanet eru alltaf seld sérsniðin fyrir hverja hurð. Þú mælir hurðaopið og sendir okkur málin, við sníðum alla hluti í réttar lengdri og þú sérð svo um að setja það upp. En ef þú vilt geturðu óskað eftir að við sjáum um mælingu og/eða uppsetningu gegn gjaldi.
Rúlluhurðanetin er hægt að fá fyrir tvöfalda hurð líka.
Rúlluhurðanets-pakki inniheldur:
- 1 stk rúllukassetta með því neti sem var valið, sniðin í rétta hæð (2 stk ef tvöföld)
- 1 stk toppbraut sniðin í rétta lengd
- 1 stk botnbraut sniðin í rétta lengd
- Handföng til að draga netið til hliðar
- 1 stk hurðabremsa (2 stk ef tvöföld)
- 1 stk segullokun, sniðið í rétta breidd (aðeins ef einföld hurð)
- 3 stk framfestingar hafi það verið valið (6 stk ef tvöföld)
- Skrúfur
Stærðarflokkur
- Þú mælir heildarbreidd sem rúlluhurðanetið þarf að vera og velur stærðarflokk samkvæmt því. Sem dæmi ef þú þarft rúlluhurðanet sem er 218 cm þá velur þú stærðarflokkinn 220 cm ogþá annaðhvort einföld eða tvöföld eftir því sem við á. Síðan í næstu reitum skráir þú nákvæm mál, hér er aðeins verið að ákveða stærðarflokk til að reikna verðið.
Festingar
- Hægt er að velja milli þess að hafa rúlluhurðanetið innfellt eða útfellt
- Ef ætlunin er að hafa það útfellt þarf að velja þann valkost og þá fylgja með festingar til að festa rúlluhurðanetið framan á dyraopið.
Net
Það eru tvær gerðir af netum í boði Lúsmýnet og Frjókornanet og eru þau bæði svört að lit.
-
Lúsmýnet
hefur 600 göt pr fertommu (30x20) og heldur úti öllum helstu skordýrum þ.m.t. lúsmýi.
-
Frjókornanet
hefur 1008 göt pr fertommu (56-18) og er sérstaklega ætlað þeim sem glíma við frjókornaofnæmi, það er mjög þéttriðið og heldur úti helstu frjókornum eins og birkifrjó, grasfrjó, nettlufrjó og ambrosia.
Athugið að við erum aðeins með lítið magn á lager af frjókornaneti og því gott að panta með góðum fyrirvara því það getur tekið nokkra mánuði að fá sérpantanir afhentar.
Litur
- Rúlluhurðanet með lúsmýneti er hægt að fá í þrem litum, hvítum, dökkbrúnum eða gráum.
- Rúlluhurðanet með frjókornaneti er bara hægt að fá í hvítum lit
- Athugið að við erum aðeins með lítið magn af dökkbrúnum og dökkgráum á lager og því gott að panta með góðum fyrirvara því það getur tekið nokkra mánuði að fá sérpantanir afhentar.
Breidd og hæð
- Í þessa reiti skráir þú nákvæma heildarbreidd og heildarhæð sem þú vilt hafa á rúlluhurðanetinu
- Gættu þess að Breidd og Hæð sem þú skráir sé innan valins stærðarflokks (sjá hér að ofan)
- Ef eitthvað er óljóst og þú ekki viss hvort þetta muni ganga upp hjá þér geturðu sent okkur myndir af hurðinni og við sjáum hvort við finnum ekki örugglega lausn sem passar þér. Sendu myndirnar á glugganet@glugganet.is. Eða þú getur kíkt til okkar á opnunartíma.
Afhending og sendingakostnaður
Afhendingartími
- Pantanir á sérsniðnum og samsettum römmum eru tilbúnar til afhendingar innan 14 virkra daga frá því pöntun er greidd. Við leggjum okkur fram um að afhenda sem allra fyrst svo það er einungis ef það er mikið álag sem afhending tekur 14 virka daga.
- Við sendum tilkynningu um leið og pöntun er tilbúin
- Hægt er að sækja sendingar til okkar á opnunartíma.
- Ef óskað er eftir að fá heimsent geta bæst við allt að 3 dagar í flutning.
Sendingakostnaður
Sendingakostnaður fyrir hverja sendingu er 2.500 kr.
Frekari upplýsingar
Ef þú hefur spurningar þá:
Athugaðu hvort þú finnur svarið í Algengar spurningar
Skoðaðu leiðbeiningar okkar
Sendu okkur fyrirspurn
Kíktu til okkar á opnunartíma