Hurðanet álrammar - Samsett
Hurðanet álrammar - Samsett
Hurðanet álrammar - Samsett

Hurðanet álrammar - Samsett

Fullt verð
Verð frá 57.490 kr
Verð
Verð frá 57.490 kr
Einingaverð
per 
Verð er með virðisaukaskatti

Almennt

Sérsniðið og samsett þýðir að þú mælir dyraopið og sendir okkur málin, við sníðum og setjum saman hurðaramma samkvæmt þínum óskum og þú sérð svo um að setja það upp. En ef þú vilt geturðu óskað eftir að við sjáum um mælingu og/eða uppsetningu gegn gjaldi.

Við bjóðum líka upp á Ósamsetta ramma ef þú vilt sjá um að sníða og setja saman hurðarammann.

Sérsniðið og samsett pakki inniheldur:
  • 1 stk sérsniðinn og samsettur hurðarammi með:
  • Net eins og var valið
  • Áföstu miðjuhandfangi
  • Áfestum lömum og skrúfum til að festa upp
  • Áfestum segulfestingum ásamt mótstykkjum og skrúfum til uppsetningar

Stærðarflokkur

  • Aðeins er hægt að velja einn stærðarflokk hér, hámarksstærð dyraops má vera 90x216 cm.
    Í næstu reitum skráir þú nákvæmt mál dyraopsins, hér er aðeins verið að ákveða stærðarflokk til að reikna verðið.
  • Sjá nánar um hvernig á að mæla í kaflanum Breidd og hæð hér fyrir neðan

Net

Það eru fjórar gerðir af netum og eru þau misjafnlega þétt og henta mismunandi aðstæðum. Netin eru öll svört að lit nema stálnetið sem er stállitt.
  • Skordýranetið
    hefur 324 göt pr fertommu (18x18) og heldur úti flestum skordýrum fyrir utan þeim allra minnstu eins og lúsmýi.

  • Lúsmýnet
    hefur 600 göt pr fertommu (30x20) og heldur úti öllum skordýrum þ.m.t. lúsmýi.


  • Gæludýranet
    hefur 165 göt pr fertommu (15x11) og er sérstaklega hannað til að halda gæludýrum inni (eða úti) auk þess sem það heldur úti flestum skordýrum fyrir utan þeim allra minnstu eins og lúsmýi.

  • Ekkert mál er að skipta um net í álrömmum eftir á ef þú kemst að því að netið sem þú valdir hentar ekki þínum þörfum. (sjá varahluti)

Breidd og hæð

  • Í þessa reiti skráir þú nákvæma stærð dyraopsins sem þú vilt hylja

  • Hér er eyðublað til að skrá niður mælingar, við munu kalla eftir þessu blaði og myndum af hverri hurð áður en við útbúum rammana þína. (eyðublaðið miðar við glugganet og sumt af því á ekki við um hurðar og má sleppa að fylla þá liði út eins og t.d. um segulborða og höldu)

  • Ef eitthvað er óljóst og þú ekki viss hvort þetta muni ganga upp hjá þér geturðu sent okkur myndir af glugganum og við sjáum hvort við finnum ekki örugglega lausn sem passar þér. Sendu myndirnar á glugganet@glugganet.is eða þú getur kíkt til okkar á opnunartíma

Staðsetning fyrir lamir

  • Mikilvægt er að velja rétt hér svo við borum örugglega lamirnar á réttan stað í rammann.

Afhending og sendingakostnaður

    Afhendingartími
    • Pantanir á sérsniðnum og samsettum römmum eru almennt tilbúnar til afhendingar innan 14 virkra daga frá því pöntun er greidd. Yfir háannatímann í maí, jún og júl getur afhending dregist umfram ofangreinda tíma. Við leggjum okkur fram um að afhenda alltaf sem allra fyrst.
    • Við sendum tilkynningu um leið og pöntun er tilbúin
    • Hægt er að sækja sendingar til okkar á opnunartíma.
    • Ef óskað er eftir að fá heimsent geta bæst við allt að 3 dagar í flutning.
    Sendingakostnaður
    • Sendingakostnaður fyrir hverja sendingu er 2.500 kr.
    • Athugið að samsettir rammar eru einungis sendir út innan höfuðborgarsvæðisins þar sem erfitt er að pakka þeim fyrir almenna flutninga.

       Frekari upplýsingar

      Ef þú hefur spurningar þá:
      Athugaðu hvort þú finnur svarið í Algengar spurningar
      Skoðaðu leiðbeiningar okkar
      Sendu okkur fyrirspurn 
      Kíktu til okkar á opnunartíma